Jobs Companies Log in Join Verith

Við leitum að liðsauka á lager | Warehouse Team Member

IS - Gardabaer Posted Oct 29, 2026

About the job

JBT Marel leitar að kraftmiklum og jákvæðum liðsfélögum til starfa á lager. Starfið er fjölbreytt og felur meðal annars í sér móttöku á vörum frá birgjum, tiltekt og afgreiðslu pantana ásamt öðrum verkefnum sem tengjast daglegum rekstri lagersins.

Við bjóðum upp á fyrsta flokks starfsumhverfi þar sem öryggi, góð liðsheild, samvinna og stöðugar umbætur eru í fyrirrúmi.

Helstu verkefni

• Móttaka og frágangur vara frá birgjum

• Tiltekt og afgreiðsla pantana

• Skráning og meðhöndlun vara í vöruhúsakerfi

• Önnur verkefni tengd daglegum rekstri lagersins

• Þátttaka í stöðugum umbótum

Hæfniskröfur

• Nákvæm, jákvæð og lausnamiðuð vinnubrögð

• Góð samskiptahæfni og áhugi á teymisvinnu

• Frumkvæði, þjónustulund og metnaður

• Hæfni til að vinna samkvæmt skilgreindum ferlum

• Góð enskukunnátta

• Íslenskukunnátta er kostur

• Reynsla af lagerstörfum er kostur

• Lyftararéttindi eru kostur

Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni og bakgrunni, til að sækja um starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 4. nóvember. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og þær berast og því hvetjum við áhugasöm til að sækja um sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Hreinn Ingi Örnólfsson í netfanginu hreinn.ornolfsson@jbtmarel.com.

Sótt er um starfið á heimasíðu JBT Marel.

Verith pulls this listing from John Bean Technologies's careers page or job board and checks it several times a day. Apply on their site.